Hugtakasafnið var unnið sumarið 2010 sem hluti af verkefninu „Íslenskir stærðfræðivefir“. Verkefnið var unnið að frumkvæði Íslenska stærðfræðafélagsins með styrkjum frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og Almanakssjóði. Stærðfræðistofa Raunvísindastofnunar Háskólans veitti starfsaðstöðu.
Þeir sem eru höfundar efnis í hugtakasafninu eru:
- Einar Bjarki Gunnarsson,
- Guðmundur Einarsson og
- Jóhann Sigursteinn Björnsson.
Umsjón með verkinu hafði Jóhann Sigurðsson.