Skip to Content

Málþing og ritverk um æfi og störf Guðmundar Arnlaugssonar

Tími: 
Sunnudaginn, 1. september 2013 - 14:00
Staðsetning: 
á Miklagarði í Menntaskólanum við Hamrahlíð

Hinn 1. september n.k. verður öld liðin frá fæðingu Guðmundar Arnlaugssonar rektors.

Guðmundur lagði víða gjörva hönd á verk á lífsferli sínum. Efnt er til málþings þann 1. september 2013 í Menntaskólanum við Hamrahlíð í tilefni þessa viðburðar og einnig er stefnt að því að gefa út bók árið 2014 sem varpi ljósi á svið og viðfangsefni sem Guðmundur sýndi áhuga og kom að.

Dagskráin er sem hér segir

Kl. Fyrirlesari og heiti erindis
14:00 - 14:10 Setning
14:10 - 14:15 Selma Guðmundsdóttir: Tónlist á flygilinn og saga hans
14:15 - 14:35 Helgi Ólafsson: Guðmundur og skákin
14:35 - 15:00 Þórir Sigurðsson: Fyrstu skref Guðmundar sem kennara við MA
15:20 - 15:50 Kaffihlé
15:50 - 16:10 Anna Kristjánsdóttir: Skýr sýn og virðing einkenndu kennslu hans
16:10 - 16:30 Jón Hannesson: Fyrstu árin, Áfangakerfið, Öldungadeildin
16:30 - 16:45 Þorsteinn Vilhjálmsson: Íslenskt mál, nýyrði og orðanefndir
16:45 - 16:55 Eggert Briem: Handan um haf er komin kveðja
16:55 - 17:00 Myndskeið frá kórnum: Hver á sér fegra föðurland