Skip to Content

Doktorsvörn í eðlisfræði: Þyngdarfræðileg heilmyndun í þéttefnisfræði

Tími: 
2. september 2011 - 14:00
Staðsetning: 
Í stofu 132 í Öskju

Föstudaginn 2. september fer fram doktorsvörn við Raunvísindadeild Háskóla
Íslands. Þá ver Tobias Zingg doktorsritgerð sína: Holographic Models for
Condensed Matter (á íslensku: Þyngdarfræðileg heilmyndun í
þéttefnisfræði).

Andmælendur eru Amanda Peet, dósent við Toronto háskóla í Kanada, og
Koenraad Schalm, dósent við Leiden háskóla í Hollandi.

Leiðbeinandi Tobiasar er Lárus Thorlacius, prófessor í eðlisfræði, og með
honum í doktorsnefnd eru Ragnar Sigurðsson, prófessor í stærðfræði, og
Þórður Jónsson, prófessor í eðlisfræði.

Fundur í samstarfi við ICE-TCS

Tími: 
2. september 2011 - 14:00
Staðsetning: 
Háskólinn í Reykjavík, stofa V109

Ron Aharoni flytur fyrirlestur á sameiginlegum fundi Íslenska stærðfræðafélagsins og ICE-TCS stofnunarinnar í Háskólanum í Reykjavík. Fyrirlesturinn verður á ensku.

Titill: Matchings in hypergraphs - many problems and some results

Útdráttur: A graph is a collection of pairs; a hypergraph is a collection of finite sets of arbitrary size, called the "edges" of the hypergraph. A matching is a collection of disjoint edges.

Fundur með erindi

Tími: 
26. maí 2011 - 16:30
Staðsetning: 
Háskólinn í Reykjavík, stofa V.1.01

Georges Gonthier of Microsoft Research will give a talk at Reykjavik University, room V.1.01, on Thursday May 26. The meeting will start with refreshments at 4:30 pm and the talk will start at 5 pm. The title is: Verifying the Four Colour Theorem.

This is a joint event with ICE-TCS, the Icelandic Centre for Excellence in Computer Science at Reykjavik University.

John Milnor hlýtur Abelsverðlaunin 2011

Þann 23. mars tilkynnti norska vísindaakademían að John Milnor hlyti Abelsverðlaunin 2011. Frekari upplýsingar má nálgast á vef verðlaunanna.

Kynningarfundur um framhaldsnám

Tími: 
24. mars 2011 - 16:45
Staðsetning: 
Stofa 157 í VR-II

Það verður fundur hjá Íslenska stærðfræðafélaginu fimmtudaginn 24. mars í stofu 157 í VR-II, bygginu Verkfræði- og náttúruvísindasviðs við Hjarðarhaga. Hann hefst kl. 16:45 og lýkur 18:15.

Þetta verður kynningarfundur á framhaldsnámi í stærðfræði og tengdum greinum. Nemendum við HÍ og HR hefur verið sérstaklega boðið á fundinn og mun félögum Íslenska stærðfræðafélagsins gefast kostur á að miðla reynslu sinni til þeirra. Allir eru velkomnir og við hvetjum sérstaklega þá sem hafa lokið framhaldsnámi á þessari öld til að mæta.

Boðið verður upp á hressingu á fundinum.

Félagatal

Agnar Darri Lárusson
Agnar Hansson
Agnar Höskuldsson
Agnethe Kristjánsson
Anders Claesson
Andri Egilsson
Anna Helga Jónsdóttir
Anna Hera Björnsdóttir
Anna Ingólfsdóttir
Anna Kristjánsdóttir
Anna Sigga Lúðvíksdóttir
Ari Brynjólfsson
Arnaldur Gylfason
Arnbjörg Soffía Árnadóttir
Arngunnur Einarsdóttir
Ádám Tímar
Álfheiður Edda Sigurðardóttir
Álfur Birkir Bjarnason
Ágúst Sverrir Egilsson
Ársæll Másson
Ásgeir Birkisson
Áskell Harðarson
Áslaug Haraldsdóttir
Ásta Guðmundsdóttir
Ásta Jenný Sigurðardóttir
Atli Norðmann Sigurðsson
Auðun Sæmundsson

Fundur með erindi

Tími: 
1. mars 2011 - 16:45
Staðsetning: 
Verzlunarskóla Íslands við Ofanleiti 1

Fundur verður í Íslenska stærðfræðafélaginu þriðjudaginn 1. mars í húsnæði Verzlunarskóla Íslands við Ofanleiti 1. Gestir eru beðnir um að ganga inn um aðalinngang skólans sem snýr að Kringlunni. Þar verður tekið á móti þeim og þeim vísað á réttan stað.

Fundurinn hefst með veitingum að hefðbundnum hætti frá kl. 16:45.

Umræðufundur um stærðfræði í framhaldsskólum

Tími: 
23. febrúar 2011 - 15:30
Staðsetning: 
Menntaskólanum við Hamrahlíð

Íslenska stærðfræðafélagið efnir til umræðufundar um stærðfræði í framhaldsskólum. Fundurinn verður miðvikudaginn 23. febrúar 2011 frá 15:30 til 18:30 í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Allir sem hafa áhuga á að taka þátt í fundinum eru velkomnir.

Póstlisti félagsins

Tilkynningar sem varða starfsemi félagsins eru sendar á póstlista félagsins. Allir sem hafa áhuga á starfi félagsins geta skráð sig á póstlistann.

Tölvupóstfang:

Lög Íslenska stærðfræðafélagsins

1. grein
Félagið heitir Íslenska stærðfræðafélagið. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2. grein
Tilgangur félagsins er að:

  1. Vera vettvangur faglegrar umræðu fyrir stærðfræðinga og annað áhugafólk um stærðfræði.
  2. Kynna og efla stærðfræðirannsóknir á Íslandi.
  3. Efla stærðfræðimenntun og almenna stærðfræðiþekkingu á Íslandi.
  4. Efla samskipti stærðfræðinga innan lands sem utan og koma fram fyrir hönd félagsmanna gagnvart skyldum erlendum félagasamtökum.

3. grein

Syndicate content