Vinna við dagskrá ráðstefnunnar gengur vel. Fyrirlestrar verða 20-25 mínútna langir og verða allan laugardaginn og fyrir hádegi á sunnudegi, alls um 15 talsins. Enn er hægt að bæta við fyrirlestrum, áhugasamir hafi samband við Stefán Inga, siv (hjá) hi (punktur) is.
Eftirtaldir fyrirlesarar hafa staðfest þátttöku.
- Eggert Briem -- Rauntölur fyrir (sem) flesta.
- Egill Sigurðsson -- Fibonaccitölur í flórunni
- Erling Jóhann Brynjólfsson -- Heilmynd af ofurleiðara með Lifshitz skölun