Aðalfundur 2026
Kæru félagar.
Aðalfundur Íslenska stærðfræðafélagsins verður haldinn miðvikudaginn 28. janúar klukkan 17:00 í stofu 155 í VR-II, HÍ, við Hjarðarhaga.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar flutt.
3. Samstarfsverkefni félagsins á erlendum vettvangi.
4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu.
5. Umsóknir um félagsaðild bornar upp.
6. Kosning stjórnarmanna.
7. Kosning skoðunarmanns reikninga.
8. Ákvörðun árgjalds.
9. Önnur mál.
*Helstu hlutverk stjórnar felast í samskiptum við regnhlífarsamtök og fagfélög erlendis, skipulagi funda og málfunda þegar við á, skipulagi ráðstefnunnar Stærðfræði á Íslandi sem haldin er annað hvert ár að jafnaði, utanumhald með bókarverðlaunum til nýstúdenta, upplýsingagjöf til félaga um viðburði tengda stærðfræði og stærðfræðimenntun, ofl.
Við vonumst til að sjá sem flesta félaga á fundinum.