Skip to Content

Ferhyrningur

Ferhyrningur er marghyrningur sem hefur fjóra hornpunkta. Ef $ABCD$ er ferhyrningur, þá eru strikin $AC$ og $BD$ kölluð hornalínur hans. Sagt er að hliðarnar $AB$ og $CD$ annars vegar og $AD$ og $BC$ hins vegar séu mótlægar. Jafnframt er sagt að hornin $\angle B A D$ og $\angle B C D$ annars vegar og $\angle A B C$ og $\angle A D C$ hins vegar séu mótlæg.

Mynd vantar

Til eru margar mismunandi gerðir ferhyrninga. Þær helstu eru:

  • Rétthyrningur er ferhyrningur með öll horn rétt.
    Mynd vantar
  • Ferningur er ferhyrningur með allar hliðar jafnlangar og öll horn rétt.
    Mynd vantar
  • Samsíðungur er ferhyrningur með mótlægar hliðar samsíða.
    Mynd vantar
  • Tígull er ferhyrningur með allar hliðar jafnlangar og mótlæg horn jafnstór.
    Mynd vantar
  • Trapisa er ferhyrningur með tvær mótlægar hliðar samsíða.
    Mynd vantar

Í ferhyrning sem er innritaður í hring er hornasumma mótlægra horna $180$ gráður.

Mynd vantar

Hornasumma ferhyrnings í evklíðskri rúmfræði er 360 gráður. Það má sjá með því að skipta ferhyrningi upp í tvo þríhyrninga með því að draga hornalínu.