Flatarmál er mælikvarði á stærð flatarmyndar sem liggur í evklíðskri sléttu. Flatarmál er rauntala og um það gildir að:
Eins flatarmyndir hafa sama flatarmál.
Ef flatarmynd er skipt í tvennt, þá er summa flatarmála hlutanna jafnt flatarmáli heildarinnar.
Flatarmál rétthyrnings er margfeldi lengda tveggja ósamsíða hliða hans.
Dæmi: Flatarmál þríhyrnings $\Delta ABC$ má finna með því að teikna rétthyrning á eina af hliðum hans.
Hér er listi yfir flatarmál og ummál nokkurra flatarmynda. Athugið að $h$ stendur fyrir hæð og $r$ fyrir radíus.
| Flatarmyndir | Nafn | Flatarmál | Ummál |
|---|---|---|---|
| Rétthyrningur | $F=a b $ | $U = 2\cdot (a + b)$ | |
| Samsíðungur | $F = h\cdot a$ | $U=2\cdot (a + b)$ | |
| Þríhyrningur | $F = \frac{a \cdot h}{2}$ | $U = a+b+c$ | |
| Trapisa | $F = \frac{h\cdot(a + b)}{2}$ | ||
| Hringur | $F = \pi r^2$ | $U=2\pi r$ | |
| Hringgeiri, $\theta$ er gefið í radíönum | $F = \frac{\theta}{2} r^2$ | $U=\theta r$ | |
| Sporbaugur | $F = a b \pi$ |